blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.19.2004

Álfurinn bak við eyrað á mér

Frétti áðan (við erum alveg að tala um næstum viku síðar! ) að síðasta helgi var meiri en minnið bauð uppá! Var alveg með það á hreinu að það var ýmislegt sem ég var að bralla sem hefði verið til dæmis sniðugara að sleppa!! en .... þetta er enn frekar tilefni til að halda vel utanum þær heilasellur sem eftir eru!... Alls ekki að maður hætti algerlega vitleysunni... get ekki einu sinni reynt að sannfæra mig um það... hún heldur áfram.. metter what :) Kanski bara spurninga að gera þetta eitthvað öðruvísi??? Hvað gerir maður þegar svona er komið fyrir manni? Heldur maður áfram og hugsar bara fock it.. það er ekki eins og þetta skiptir einhverju máli... sem það gerir alls ekki... eða fer maður að hugsa sinn gang??? Búin að vera að reyna að muna eftir einhverju... en nei.. bara blanco hérnamegin! Æji ég veit ekki.. er lífið ekki of stutt til að velta sér uppúr einhverju sem skiptir ekki máli og ef maður er ekki með neinn móral og enga eftirsjá þá er þetta ok... sérstaklega vegna þess að mann rámar ekki baun! Sjálfsögðu.. hvers vegna er eg að velta þessu fyrir mér?? Hlítur að vera einhver álfur bak við eyrað sem er að pota í mig með þetta....eins og mér ætti að finnast eitthvað um þetta??! ..en álfurinn er greinilega ekki að standa sig!!! Þannig málið er hér með dautt :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home